sunnudagur, 27. maí 2012

Statusinn...

...er svona á húsinu en við erum svo á leiðinni á morgun að kíkja, veit allavega að þeir eru búnir að grunna og mála eitthvað svo verður kíkt á eldhúsinnréttinguna. Verktakarnir áætla að klára núna 1. júní en þá er þó eftir að klára rest af gluggum og auðvitað klæðninguna á húsið. Það verður samt fljótlega í júní byrjað á því þannig að í júnímánuði ætti allt að klárast.... jeiii !!!







Best Blogger Tips

þriðjudagur, 22. maí 2012

Borðstofustólarnir

Hér kemur fyrir og eftir mynd af "nýju" borðstofustólunum okkar. Ég gleymdi auðvitað að taka almennilega fyrir mynd en fann þessa og hún verður að duga. 


Hér koma svo nokkrar fleiri myndir af stólunum. Ég veit að ég er mjög brött að setja svona hvítt áklæði á stólana, kannski ekki beint barnvænt en ég er með ráð uppí erminni við því. Sýni það síðar.... en allavega er ég hrikalega ánægð með þá og þeir eiga eftir að vera rosalega flottir við borðið og ég tala nú ekki um bara í allt rýmið. 





Best Blogger Tips

Verktakarnir komnir....

jeiiiiiii :) ég myndi hoppa hæð mína ef ég mögulega gæti það. Nú skotgengur allt, baðherbergið er að klárast, 4 gluggar komnir í, nýja útidyrahurðin uppsett, verið að klára arininn og svo er verið að pússa veggi og gera klárt fyrir málningarvinnu í þessum töluðu orðum. Blússandi gangur bara. Mikið hlakka ég til að sjá þetta allt klárt. Hér koma nokkrar myndir:

Blessuðu gluggarnir loksins komnir í hús, þetta er sá eini sem er fullkláraður hinsvegar. Við bíðum enn eftir gleri sem þurfti að panta uppá nýtt.

Verið að taka gömlu gluggana úr.

Sumir dálítið fúnir undir.

 Það voru hellings átök

En það hafðist


Gluggarnir komnir í stofuna

Annar eldhúsglugginn kominn

Séð að utan

Séð inn í baðherbergið

Líst vel á þessa sturtu :)

Vaskurinn tengdur

Fína útidyrahurðin

Allt annað að fá stóra og flotta hurð


Best Blogger Tips

laugardagur, 19. maí 2012

Work in progress

Húsfrúin er búin að vera að myndast við að pússa og grunna og mála og og.... það alveg skotgengur. Núna bíð ég bara eftir pallagrunninum sem ég nota ofan á borðplötuna en ég fæ það á mánudag. Þá fer borðið að verða tilbúið. Ég set inn nokkrar myndir sem ég tók á símann, þær eru kannski ekki 100% en gefa smá innsýn í það hvað ég er að gera.

 Búin að pússa helminginn af borðinu, sést hvað það var orðið illa farið og upplitað

Þessi stjórnaði með harðri hendi yfir hádegismatnum ;)

Þarna er ég búin að grunna fæturna 3 sinnum með hvítum grunni og eina umferð af lakkmálningu

Kemur ótrúlega vel út

Svo tók ég mig líka til og bæsaði nýju arinhilluna mína. Ég lét saga fyrir mig plötu í Húsasmiðjunni og síðan var ég með smá afgangs hvíta málningu sem ég þynnti út með vatni. Málaði síðan yfir flötinn og þurrkaði yfir með tusku. Ég er bara nokkuð sátt og hlakka til að sjá lokaútkomuna, en þið?






Ég set inn betri myndir við tækifæri, þetta sést kannski ekki nógu vel en þetta kemur allavega betur út núna.

Nú koma verktakarnir í dag og ég er búin að sjá hurð af eldhúsinnréttingunni og hún er ÆÐI !!! Kemur betur út en ég þorði að vona. jiiiiii hvað ég er spennt !!!!


Best Blogger Tips

laugardagur, 12. maí 2012

Sneak peak...

.... ég er alveg að verða búin með málningarvinnuna á stólunum og byrjuð að pússa upp borðið. Verður hrikalega flott, hlakka svo til að byrja á því. En hér er smá sneak peak af því hvernig stólarnir verða (afsaka draslið bak við en það er allt í kössum og dóti um allt ennþá)


Hvernig líst ykkur á?

Síðan erum við búin að setja saman svefnherbergishúsgögnin og þau koma svona hrikalega flott út. Við erum rosalega lukkuleg með litinn á þeim, mjög hlýleg og falleg. Verður gaman að klára það herbergi, á eftir að velja fallegar gardínur og svona smá punterí. En hér kemur allavega mynd af fataskápnum, en það á eftir að setja hurðarnar á hluta ;)


Set fleiri myndir þegar herbergið er fullklárað.

Kveðja Birna



Best Blogger Tips

mánudagur, 7. maí 2012

Núna eru hlutirnir að rúlla...

... enda kominn tími til. Gluggarnir og verktakarnir eru væntanlegir um helgina og þá verður allt klárað. Mikil og löng bið en við erum þó ekki búin að gefast upp, við erum alveg viss um að öll þessi bið eigi eftir að vera þess virði. Við hefðum getað verið búin að gefast upp en við höldum okkar striki.

Ég er byrjuð að mála stólana við borðstofuborðið í aðallit og ég get sagt ykkur það að þeir verða geggjaðir. Þetta er svo akkurat liturinn sem ég var að vonast eftir þannig að það verður gaman að sjá þetta allt saman. Þetta verður eins og nýtt borðstofusett.

Sófinn flotti sem ég sýndi hér að neðan er komin suður til bólstrara og ég valdi áklæði um helgina. Ég ákvað að hafa hann svona tvílitann eins og hann var upprunalega, hann verður æði. Svo bíður mín næsta verkefni en það er að breyta sófaborðinu, það verður eitthvað hrikalega töff.

En jæja nú fer vonandi að komast meiri gangur í bloggið og ég get farið að sýna ykkur meira þegar framkvæmdir hefjast að nýju.

Bestu kveðjur
Birna Best Blogger Tips