þriðjudagur, 27. mars 2012

Það er eitthvað að gerast...

... í okkar málum loksins. Gluggarnir verða komnir í okkar vörslu í dag og þá hefst vinnan við að mála þá og glerja. Því verki verður lokið eftir páska og þá verður hægt að klára húsið hjá okkur. Verktakarnir komu og héldu áfram með sitt verk í seinustu viku og nú er bara að bíða eftir gluggunum. Þeir náðu að gera heilan helling og hér er útkoman:

Sturtuklefinn kominn á sinn stað

Allt annað að hafa klósettið upphengt og svona beint heldur en á ská út úr horninu

Búið að setja upp vegginn í sjónvarpsholinu

 Það er að koma mynd á arininn

Verður miklu opnara og skemmtilegra

Verið að loka þessu leiðinlega gati sem myndaðist þarna við stigaloftið

Inngangurinn

Búið að slétta alla veggi, loft og gólf.
Hvernig líst ykkur á??
Best Blogger Tips

miðvikudagur, 21. mars 2012

Langar í sumar og garðinn minn

Garðurinn í Króknum er í mikilli órækt og það er annað verkefni út af fyrir sig að taka hann í gegn, en við hjónin erum samt byrjuð að hugsa hvernig við viljum hafa hann. Svo er maður alltaf á pinterest og það eru endalausar hugmyndir eins og þessar sem eru allar á pinterest síðunni minni .....



















Best Blogger Tips

miðvikudagur, 14. mars 2012

Smá update

Það virðist vera að þoka til í gluggavandamálunum hjá okkur loksins og við ættum að ná lendingu á morgun að öllum líkindum. En maður þorir nú ekki að staðfesta samt !! Þegar þeir eru komnir í okkar hendur þá á enn eftir að mála þá og glerja. Vona svo innilega að við förum að fá smá break í þessu, við erum búin að lenda í miklu basli og mér finnst við allavega eiga það skilið að allt gangi upp sem eftir er. Nú er bara að krossa fingur og bíða. Á meðan læt ég mig dreyma um heimilið mitt og er farin að sakna þess MJÖG mikið.

Að öðrum skemmtilegri og spennandi nótum þá er ég að fara að hefjast handa við að breyta stofuborðssettinu mínu. Ég ætla að breyta stólunum, lit og sessum og mála borðið sjálft. Hér er mynd af því eins og það er í dag:


Ég býst sterklega við því að taka barnastólinn í yfirhalningu líka, hann verður jú að fitta inn í nýja lúkkið ekki satt. Þetta verður spennandi verkefni, ég ætla að byrja á stólunum, pússa þá upp, grunna og mála. Einnig er ég búin að  kaupa nýtt efni til að skipta um á sessunum. Það verður gaman að sjá lokaútkomuna. Ég er allavega spennt en þið?

Best Blogger Tips

miðvikudagur, 7. mars 2012

Afmælisveisla nr 1...

... við gátum náttúrulega ekki annað en haldið smá veislu fyrir elsku drenginn okkar þó svo hin eiginlega veisla verði ekki haldin fyrr en við komumst inn í húsið okkar og allt verður tilbúið. Við gistum eins og er hjá tengdaforeldrum mínum í sveitinni og við buðum nokkrum í veislu.

Hér er afmælisdrengurinn nývaknaður og auðvitað HRESS !!




Mamman hentist síðan í að baka þegar búið var að fá sér morgunmatinn. Mamman fékk 2 aðstoðarkokka til að hjálpa sér með herlegheitin en við ákváðum að gera súkkulaðiafmælisköku, perutertu og eplaköku auk 2 brauðrétta. En það besta við baksturinn er að fá að smakka :)


Hér er drengurinn að opna fyrstu gjöfina, frá ömmu og afa í sveitinni. Fékk traktoranáttföt og leikfangatraktor.




Hér koma svo myndir af kræsingunum og ég læt myndirnar tala en uppskriftirnar fylgja með í linkum. Ég er nefnilega með uppskriftablogg líka :)










Drengurinn var svo alsæll með veisluna.



Best Blogger Tips

1 árs afmæli Frosta Þórs

Elsku gullmolinn okkar átti afmæli í dag. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það sé ár síðan við héldum á honum í fanginu í fyrsta sinn. Hann er svo fullkominn, stór og flottur víkingur, 17 merkur og 54cm.


Maður gæti ekki verið stoltari en akkurat á þessu augnabliki. En nú ætla ég að hætta áður en ég verð OF sentimental :) Drengurinn fæddist í miklum snjóbyl og við foreldrarnir vorum bæði með þetta nafn, Frosti, í huga.... þannig að svo varð úr að hann fékk nafnið Frosti Þór.


Frosti er mjög stór og duglegur strákur. Hann byrjaði snemma að taka tennur; var kominn með 8 tennur 8 mánaða, farinn að skríða 6 mánaða og stóð upp 7 mánaða, byrjaði að labba 10 og hálfs mánaða og hleypur núna um öll gólf segjandi kva'edda? eða hvað er þetta?


Hann er mjög athugull, fljótur til og lærir fljótt á hluti sem hann sér aðra gera. Hann er algjört matargat og þessi drengur er alltaf brosandi. Hvað er yndislegra en að fara inn í herbergi sonar síns og svona risastórt sólarbros mætir manni þegar inn er komið. Hann er sólargeislinn í okkar lífi og mikill gleðigjafi



Þessi mynd er náttúrulega bara æði.

Á morgun set ég inn færslu með afmælisveislu-myndum :) en þangað til segi ég góða nótt 

Best Blogger Tips

fimmtudagur, 1. mars 2012

Pinterest dagur

Hvað ég get verið lengi að skoða og skoða og skoða .... á Pinterest. Þetta er algjör snilldarsíða, líka til þess að geyma allar þessar hugmyndir sem manni langar að framkvæma. Áður setti ég síður í favorites en þetta er miklu aðgengilegra. Hérna ætla ég að sýna nokkrar hugmyndir sem hafa kveikt áhuga minn á síðustu dögum.


Fallegur texti á vegg








Best Blogger Tips