laugardagur, 28. janúar 2012

Tómlega húsið

Það er mér mikið gleðiefni að segja frá því að LOKSINS er komið að því. Verktakarnir koma til okkar á morgun, JEIIIIIIIII !!!!!!  Þannig að við gengum alveg frá á aðalhæðinni, pökkuðum öllu niður AFTUR.... en ég get nú huggað mig við það að það verður svo gaman að taka upp úr þeim aftur í nýja fína eldhúsinu og stofunni minni :)

 Sjónvarpsholið orðið tómt

Búslóðin komin inní skrifstofurýmið

Strax eftir helgi verður farið í það að rífa niður eldhúsinnréttingu og gólfefni. Mikið hlakka ég til að sjá breytinguna. Svona er þetta núna:



 Hlakka líka mikið til að gera breytingu á þessu borðstofusetti


Kamínan góða, hér verður mikil breyting


 Eldhúsið verður óþekkjanlegt




Síðan fara þeir í algera breytingu á baðherberginu. Svona er það núna:

Lítið og nett

Ekki fallegt inní sturtuklefanum :/

 Ég hef ekki mikla lyst til að sturta mig þarna :S jakk



Þetta verður brill :) Hlakka svo til að sjá útkomuna....
Best Blogger Tips

laugardagur, 21. janúar 2012

Hef ég sagt ykkur hvað ég elska PINTEREST?

Ég get gleymt mér þarna inni í marga klukkutíma stundum. Það eru óteljandi hugmyndir sem maður rekst á og þá getur maður "pinnað" og svo safnar maður þessum hugmyndum saman í flokka að eigin vild. Ég safna mjög mikið í saumahugmyndir, ýmislegt föndur og hugmyndir til að fegra heimilið. Hér koma nokkrar sniðugar hugmyndir sem hugtóku mig.












Sætt í svefnherbergið


Best Blogger Tips

föstudagur, 20. janúar 2012

Endurnýjun lífdaga

Ég er mjög mikið í því að reyna að nýta þau föt sem ég á og breyta þeim eða nota efnið til þess að sauma eitthvað annað. T.d. er hluti af þessum gjöfum sem var í færslunni hér á undan gerður úr gömlum fötum. Hér eru nokkrir hlutir sem ég saumað úr gömlu

Ungbarnasett sem ég gerði úr flísteppi

Ungbarnahúfa úr flísteppi

Kjólinn passaði ekki nógu vel þannig að ég breytti honum svona

Gerði sama með þennan, var hætt að nota þennan rauða

Kemur svona fínt út
Svefngalli á ungabörn úr gömlum bolum af mér
Hálsmen úr gömlum bol 

Taska úr gömlum bol
Sundtaska úr gömlum bol

"Dömubindi" hálsmen úr gömlu bindi af pabba :)

Það er svo gaman að prófa sig áfram....


Best Blogger Tips

þriðjudagur, 17. janúar 2012

Kannski kominn tími...

.... á færslu frá mér. Búið að vera dálítið mikið að gera hjá mér undanfarið þannig að ég hef lítið verið að sinna verkefnum á listanum mínum langa ;)

En mér langar að sýna ykkur nokkra hluti sem ég bjó til og gaf í jólagjafir. Flestar hugmyndir komnar út frá Pinterest.... ohh hvað ég elska PINTEREST !!

Þessa sætu uglu gerði ég fyrir litla frænku

Hringtrefill fyrir flotta skvísu

Þennan hringtrefil gaf ég mömmu minni

Síðan gerði ég nokkur eyrnabönd



Ætla mér alltaf um hver jól að búa til allar jólagjafir en tíminn virðist oft hlaupa á undan manni. En þetta er allavega það sem ég náði að klára þessi jólin, set markmiðið hærra á því næsta :)

Best Blogger Tips

fimmtudagur, 5. janúar 2012

Speglaflísar bjarga miklu

Litla baðherbergið mitt á efri hæðinni er með útdraganlegri hurð sem er allt í góðu nema að hún er pikkföst. Hefur þanist út og henni er bara ekki haggað. Því hefur verið bjargað með því að setja plötu á lamir og setja fyrir opið. Gangurinn var síðan málaður í gulum lit og þessi hurð í grænu sem gerði þetta nú bara ennþá meira áberandi, því þetta hlýtur að hafa átt að vera svona til bráðabirgða. Svona leit þetta út:




Ég velti fyrir mér hvað ég gæti gert til þess að gera þetta kannski aðeins minna áberandi eða nytsamlegra. Ég málaði ganginn hvítann og síðan datt mér í hug að setja speglaflísar á hurðina. Þannig bæði stækkar rýmið og það er alltaf gott að vera með stóran spegil þegar maður er að skoða sig ;)




Best Blogger Tips