sunnudagur, 23. október 2011

FYRIR myndirnar....

....tadadadammmmm..... hér koma þær.



Húsið að framan



Gangið í bæinn



Stiginn séð frá inngangi að framanverðu



Stofan



Eldhúsið



Baðherbergi niðri



Sjónvarpsholið



Séð inní skrifstofuna, en þarna mun koma veggur fyrir að hluta til



Jæja þá er það efri hæðin



Gangurinn uppi



Frosta herbergi



Ólivers herbergi



Svítan okkar Ásgeirs




Gestaherbergið



Saumaherbergið mitt



Baðherbergi uppi (einhver gleymt að setja setuna niður... hummhumm



Mikið verið að spá og spekúlera, græna hurðin bak við Ásgeir er hurðin inná baðherbergið (tek betri mynd af því seinna)


Séð niður stigann



Inngangur að aftan



Húsið að aftan
Best Blogger Tips

fimmtudagur, 20. október 2011

Máli, máli, máli....

...það tekur á að mála risahús get ég sagt ykkur. En þetta hefst allt og núna er ég búin að klára að mála svefnherbergin og saumaherbergið nema að ég á eftir að mála loftin. Þetta kemur alveg rosalega vel út og ég er mjög ánægð með litina sem ég valdi. Þá er eftir að mála loft, gestaherbergi, salerni og ganginn og þá ætti efri hæðin að vera klár. Ekki seinna vænna því við erum að fara að flytja inn eftir 8 daga.... JÆKS !!!

Hér kemur mynd af strákunum mínum í Ólivers herbergi, smá sneak peak ;)


Næst mun ég setja inn fyrir myndir af húsinu og svo verður hægt að setja fyrir og eftir myndir þegar það fer að koma mynd á efri hæðina. Neðri hæðin verður eitthvað aðeins seinna, það koma menn í það vonandi um miðjan nóv. Best Blogger Tips

mánudagur, 17. október 2011

Er eiginlega búin að skipta um skoðun...

... með hugmyndir fyrir herbergið hjá Frosta. Þessar krúttlegu uglur allsstaðar eru að heilla mig upp úr skónum. Þannig að ég held að ég geri ugluþema í hans herbergi. Sá líka svo fínt efni í RL sem ég ætla að nota inní herbergið ;) en hér koma nokkrar hugmyndir


Svo fallegt



Einfalt en flott



Litríkt og krúttlegt



Kjútness



Flott


Hvernig líst ykkur á þetta? Best Blogger Tips

föstudagur, 14. október 2011

Pinterest.....

...ég hreinlega dýrka þessa síðu, finnst þetta svo sniðugt. Ég var einmitt alltaf að safna svona síðum sem ég vildi eiga í bókamerki en svo mundi maður ekkert hvað maður var að setja inn og skoðaði það aldrei en núna er einfalt að finna þessar hugmyndir. Hvort sem það eru uppskriftir, DIY verkefni, stílíserningar eða hvað...

Undanfarið hef ég verið að "pinna" Uglur, er með einhverja uglu-dellu allt í einu. Kannski er bara svona mikið framboð en þær eru sætar, getur enginn mótmælt því.


Etsy



Etsy



Gingercake



Gingercake



Etsy



Etsy feature on Upcycle magazine



Eruð þið líka uglusjúk ??? Best Blogger Tips

mánudagur, 10. október 2011

Þessir eru reddí....

.... ég notaði sömu aðferð á þessa og á stóra spegilinn hér fyrir neðan. Þeir koma svo miklu betur út.


síðan er það þessi flotti kertastjaki sem enginn vildi, en eftir breytingu er hann að verða einn af mínum uppáhalds kertastjökum. ég er alveg forfallinn kertasjúklingur ;) það er líka ekkert meira kósí en að hafa ljósin slökkt, best ef það er bara rafmagnslaust, kveikja á fullt af kertum og hafa það kósí uppí sófa.


bið að heilsa í bili
kveðja
Birna Best Blogger Tips

fimmtudagur, 6. október 2011

3 skref .......

..... til fullkomnunar !! ja eða svo gott sem, ég er allavega orðin mjög sátt við spegilinn núna.


Mér fannst alltaf eitthvað vanta áður en ég gerði seinasta skrefið. En ég byrjaði á því að grunna spegilinn, síðan málaði ég 2 umferðir með hvítri málningu. Þá sandaði ég létt yfir hann til að gera hann "distressed" og að lokum þynnti ég brúna málningu með vatni og málaði með pensli yfir hann. Strauk svo yfir með svampi og síðan blautri tusku til að ná sem mestu af sléttu flötunum. Núna hefur hann þetta "aged look".

Þá er bara að skella sér í næsta ókláraða verkefni en það er rosalega falleg kommóða sem ég keypti í Góða hirðinum á 800 kr.- Mér finnst svo flott lagið á henni en platan er frekar illa farin. Ég er búin að grunna og planið er að blúnduspreyja hluta. Spennandiiiiiii .......

Stay tuned !!!

Best Blogger Tips

miðvikudagur, 5. október 2011

Daddaddadammmmm.......

Hér kemur gripurinn í öllu sínu veldi, ég er svo ástfangin af þessum spegli :) mér fannst hann alltaf svo flottur en núna er hann bara gordjöss.... Hvað finnst ykkur?


Fyrir og eftir, smellið á myndina til að fá hana stærri



Nærmynd af flotta mynstrinu



Hér er hann kominn uppá vegg með skúffuskenknum sem ég er líka búin að taka í gegn sjá hér


Ég er alveg rosalega ánægð með þessa breytingu !! Endilega segið mér hvað ykkur finnst :) Best Blogger Tips

Jæja er ekki löngu kominn tími á nýja færslu ???

Við erum ekki enn byrjuð á breytingunum á húsinu og þar af leiðandi er ég ekki svo virk hérna á þessu bloggi bara svo ég afsaki mig aðeins ;) en það styttist. Við erum búin að leigja út húsið okkar á Bíldudal frá og með 1. nóvember þannig að ég er byrjuð að pakka á fullu og fór með fyrstu kassana í Krókinn í gær :) jei !!!


Ég er byrjuð að gera efri hæðina klára fyrir málningarvinnu, löngu búin að velja liti frá Flugger í svefnherbergin og nú er bara að hefjast handa við að mála. Ég valdi litinn Ferskblár fyrir strákana mína. Mér finnst hann vera hlýr og þægilegur og passar fyrir breiðan aldur (ekki of baby-legur ;). Hér koma fyrirmyndir af herbergjum sem ég ætla að styðjast við:





Hjónasvítan verður í rómantískum litum, white rose og misty lillac. Held að það eigi eftir að vera algjör paradís. Hlakka mikið til að gera bakherbergið í hjónaherberginu en þar verður húsfrúin með snyrtiherbergi, ekki slæmt það!!


Ég læt þetta nægja að sinni en næst kem ég með fyrir og eftir mynd af stóra speglinum sem ég er búin að vera að mála og breyta. Hann er orðinn þvílíkt flottur. Stay tuned !!! Best Blogger Tips